Mörk - Það er svartur föstudagur


Það hefur snjóað í Reykjavík og í Mörk erum við að hengja upp jólaljósin.  Þetta ætti því að vera alveg hreint ágætur föstudagur.  Það eina sem skyggir á gleðina eru fréttir um fjölgun smita úti í samfélaginu.  Við vorum orðin svo vongóð um að hægt væri að létta á heimsóknartakmörkunum á aðventunni.  Nú þorum við ekki annað en að bíða og sjá.  Vonandi fer þetta nú fljótlega í  betri farveg.  Við gefum okkur nokkra daga til viðbótar áður en við ákveðum breytingar.  Í dag eru reglurnar þær að einn má koma í heimsókn, tvisvar í viku.  Hann þarf að hringja á undan sér, heyra í deildarstjóra og bóka heimsókn.  Það er möguleiki á því, í samráði við deildarstjóra, að skipta út heimsóknaraðila milli vikna.  Við hvetjum heimsóknargesti til þess að gæta sérstaklega vel að sóttvörnum í sínu einkalífi og vera með grímu þegar þeir koma í heimsóknina og eins að spritta hendur við komu.  Við hvetjum ykkur líka til þess að vera dugleg að hringja í ykkar fólk og eins að nýta facetime og skype, fínt að gera það svona milli þess sem þið verslið jólagjafirnar á netinu 😊 
 
Símanúmer deildarstjóra eru:
Theódóra deildarstjóri 2. hæð 5601724/5601720
Jóhanna aðstoðardeildarstjóri 3. hæð 5601734/5601730 
Steinunn deildarstjóri 4. hæð 5601744/5601740
Lilja deildarstjóri 5. hæð 5601754/5601750